top of page

um

Ég heiti Iazmina Ana Maria Bizoi, eigandi og stofnandi Málbrú ehf. Ég flutti til Íslands árið 2007, þá aðeins 5 ára gömul, og frá þeim degi hefur landið og tungumálið orðið stór hluti af minni sjálfsmynd. Ég hóf skólagöngu mína í íslensku skólakerfi þar sem ég lærði íslensku frá grunni og öðlaðist djúpan skilning á samfélaginu, menningunni og samskiptamátanum. Sú reynsla, að alast upp milli tungumála og menningarheima, er í dag ein af mínum stærstu styrkleikum í starfi.

 

Ég tala rúmensku, íslensku og ensku og hef starfað við túlkun í yfir 6 ár. Á þeim tíma hef ég byggt upp víðtæka reynslu í mannlegum samskiptum þar sem fagmennska, trúnaður og virðing eru alltaf í fyrirrúmi. Fyrir mér snýst túlkun ekki eingöngu um að þýða orð – heldur um að skapa brú milli fólks, tryggja að skilaboð skili sér rétt og að allir upplifi sig séða, heyrða og skilda.

 

Ástríða mín fyrir starfinu endurspeglast í hverju verkefni sem ég tek að mér. Ég legg mikla áherslu á vandaða, persónulega og áreiðanlega þjónustu þar sem gæði og traust fara alltaf saman.

 

Málbrú ehf. er mitt hjartans verkefni og mitt stærsta stolt. Fyrirtækið hef ég byggt upp af elju, metnaði og einlægri löngun til að lyfta túlkaþjónustu á hærra faglegt stig. Það hefur verið mér ómetanlegt að sjá Málbrú vaxa og styrkjast með hverju árinu sem líður, og þróast í takt við þarfir viðskiptavina.

 

Markmið mitt er að halda áfram að byggja upp þjónustu sem einkennist af gæðum, fagmennsku og hlýju – þar sem hver viðskiptavinur fær persónulega nálgun og upplifir öryggi og traust frá fyrstu samskiptum.

DSC00334.jpg
bottom of page