Algengar spurningar
Á hvaða tungumálum túlkið þið?
Við útvegum túlka á öllum tungumálum. Láttu okkur vita í bókunarforminu hvaða tungumál þú þarft og við finnum túlk sem hentar.
Hvernig bóka ég túlk?
Fylltu út bókunarformið á vefnum, sendu tölvupóst á iazmina@malbru.is eða hringdu í síma 699 1863. Gott er að taka fram tungumál, dagsetningu og tíma, áætlaða lengd og hvort túlkað er á staðnum, í síma eða á fjarfundi.
Hvaða leiðir eru í boði?
Samfélagstúlkun, þar sem túlkurinn mætir á staðinn, símatúlkun og fjartúlkun í gegnum myndfund.
Hversu langan fyrirvara þarf?
Því fyrr sem beiðni berst, því auðveldara er að finna túlk. Hafðu samband ef fyrirvarinn er stuttur og við gerum okkar besta.
Hver greiðir fyrir túlkinn?
Þegar opinber stofnun, til dæmis heilbrigðisstofnun, skóli eða félagsþjónusta, kallar til túlk greiðir hún almennt fyrir þjónustuna. Fyrirtæki og einstaklingar sem panta túlk sjálf greiða fyrir hann.
Er túlkunin trúnaðarmál?
Já. Túlkar Málbrúar gæta fyllsta trúnaðar og hlutleysis og túlka allt sem sagt er, án þess að bæta við eða sleppa.