top of page
Fjartúlkun
Fjartúlkun fer fram í gegnum myndfund, til dæmis á Teams, Zoom eða Google Meet. Túlkurinn tengist fundinum og túlkar samtalið jafnóðum, hvar sem aðilar eru staddir.
Fjartúlkun hentar vel til dæmis:
• fyrir fjarviðtöl hjá læknum, sálfræðingum og ráðgjöfum
• fyrir fundi þar sem þátttakendur eru á mismunandi stöðum
• þegar langt er að fara fyrir túlk að mæta á staðinn
• þegar mikilvægt er að sjá svipbrigði og látbragð, sem kemur ekki fram í síma
Túlkurinn gætir fyllsta trúnaðar og hlutleysis og túlkar allt sem sagt er, án þess að bæta við eða sleppa.
Við útvegum túlka á öllum tungumálum. Bókaðu fjartúlkun í gegnum bókunarformið eða hringdu í síma 699 1863.
bottom of page